Fjöldi fólks er að takast á við allskonar vanlíðan og veikindi, eitthvað sem bara virðist vera hluti af lífinu en þarf það svo að vera? Sem dæmi er talið er að á Íslandi þjáist um 12-15 þúsund manns af þunglyndi á hverjum tíma. Ástæðan virðist oft ekki vera þekkt og lyf alltof oft að mínu mati fyrsta úrræði sem þó oft á tíðum deyfa bara einkennin í stað þess að vinna á rót vandast. En hver getur rótin verið?
Flest höfum við upplifað í einhverri mynd erfiðleika í æsku. Einelti mögulega eða ósætti við foreldra, kannski of mikið drukkið á heimilinu, skilnaður foreldra eða einhverskonar vanræksla eða ofbeldi. Áhrif erfiðleika í æsku getur haft alvarlegar afleiðingar á heilsufar á fullorðinsárum. Mun meiri ef flestir gera sér grein fyrir.
ACE (sem stendur fyrir Adverse childhood experience) er próf sem tekur saman mismunandi týpur af ofbeldi, vanræsku og öðrum neikvæðum upplifunum úr æsku. Prófið eru 10 einfaldar spurningar með já og nei. Ef svarað er Já t.d við þremur spurningum þá er skorið 3. Hærra skor eykur áhættuna og líkurnar á heilsufarsvandamálum síðar á lífsleiðinni.
Bresk heilbrigðisyfirvöld létu útbúa myndband þar sem fjallað er um málefnið og því gefin góð skil. Er því ætlað að vera til vitundarvakningar um þetta algenga og skaðlega fyrirbæri sem ACE er. Í myndbandinu er rakin saga af ungum dreng sem verður fyrir áföllum heimafyrir og hvernig það hefur áhrif á hann inn í unglingsárin og þaðan fullorðinsárin. Þar sem hann varð fyrir ofbeldi sjálfur er hann mun líklegri til að beita því sjálfur á börn sín og maka og þannig heldur vítahringurinn áfram. Myndbandið sýnir í raun framtíð þessa drengs á tvo vegu. Annars vegar án nokkurar aðstoðar sem endar ekki vel ef ég kjafta nú aðeins frá og hins vegar með hjálp sem hreinlega bjargar honum og stoppar vítahringinn. Fræðsla skiptir sköpum og þannig má auka líkur á að taka eftir börnum sem orðið hafa fyrir áföllum en þau eru oft óörugg og kvíðin.
Leiðir til bata geta síðan verið margvíslegar fyrir þá sem eru fullorðnir eru. Líkamsrækt hjálpar auðvitað alltaf til og hollt mataræði, slökun, hugleiðsla og góður svefn en ef sálin er brotin eftir áföll æskunnar þarf að vinna út frá þeirri rót.
Ótal sjálfshjálparefni má finna á netinu og langar mig t.d að nefna HAM (hugræna atferlismeðferð) en bókin er öllum opin inn á heimasíðu Reykjalundar. Fjölmargar bækur geta hjálpað, t.d reprogram your subconsciousness sem finna má á amazon kindle og svo endilega að leita og prófa sig áfram, það sem hentar einum þarf ekki að henta öðrum. Einnig að sjálfsögðu að fá aðstoð frá fagaðila.
Geðhjálp heldur úti frábæru starfi í þágu andlegrar heilsu. Þar er hægt að fá stuðning og finna fróðleik um hvert sé hægt að snúa sér til að fá aðstoð. Á heimasíðu Geðhjálpar má m.a finna ACE- spurningalistann á Íslensku.
Ég segi eins og nafni minn Víðir Reynisson yfirlögregluþjónn, verum góð hvort við annað og svo bæti ég við, leitum okkur hjálpar ef okkur líður illa og reynum að hjálpa öðrum sem sama hætti.
コメント